Það bar svo við á Húsavík í dag….

1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Það bar svo við á Húsavík í dag að togari kom til hafnar en stoppaði hann þó stutt við. Um er að ræða togara þann sem Dalvíkingar létu smíða fyrir sig í Noregi árið 1988 og nefndu Björgvin EA 311. Á Dalvík hefur hann átt heimahöfn allar … Halda áfram að lesa Það bar svo við á Húsavík í dag….

Sæunn ÞH 22

7158. Sæunn ÞH 22 ex Þyrí. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sómabáturinn Sæunn ÞH 22 er hér á skriði einn Sjómannadaginnn á Skjálfandaflóa. Sómi 800 held ég örugglega, smíðaður 1989 í Hafnarfirði. Eigandi Sævar Guðbrandsson frá árinu 1991. Hét áður Þyrí. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Sæunn ÞH 22

Þorsteinn GK 15

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eik­ar­bát­ur­inn Þor­steinn GK 15, sem gerður var lengi út frá Raufar­höfn, kemur hér að landi á Húsavík um árið. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15. Þorsteinn er … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 15

Ófeigur III VE 325

707. Ófeigur II VE 325. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Ófeigur III VE 325, sem hér siglir inn Reyðarfjörð, var smíðaður í Hollandi árið 1955 og hét sama nafninu alla tíð. Eigendur hans frá upphafi árs 1955 voru þeir Þorstein Sigurðsson og Ólaf Sigurðsson í Vestmannaeyjum. Báturinn sem upphaflega mældist 66 brl. að stærð var lengdur á … Halda áfram að lesa Ófeigur III VE 325

Ársæll Sigurðsson HF 80

2468. Ársæll Sigurðsson HF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Ársæll Sigurðsson HF 80, sem hér sést koma til hafnar í Þorlákshöfn í marsmánuði 2006, var smíðaður í Kína árið 2001. Báturinn, sem upphaflega var í eigu Viðars Sæmundssonar í Hafnarfirði, heitir í dag Guðbjörg GK 77 og lesa má um hana hér. 2468. Ársæll Sigurðsson … Halda áfram að lesa Ársæll Sigurðsson HF 80

Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík

973. Dagfari ÞH 40. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þesari mynd Hreiðars Olgeirssonar liggur Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík og landar síld. Þetta var sá fyrri, sem kom 1965 og fékk nafnið Ljósfari ÞH 40 þegar sá seinni kom árið 1967. Báðir smíðaðir í Boizenburg í A-Þýskalandi fyrir Barðann hf. á Húsavík. Með því … Halda áfram að lesa Dagfari ÞH 40 við bryggju á Húsavík

Hafsúla BA 741

1470. Hafsúla BA 741 ex Hafsúla ÍS 741. Ljósmynd Þorgeir Baldursson. Hafsúla BA 741 sem er á þessari mynd Þorgeirs Baldurssonar heitir Salka í dag og er hvalaskoðunarbátur á Húsavík. Upphaflega Hafsúlan SH 7, smíðuð fyrir Halldór S. Sveinsson í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið 1976. Afhent í janúar 1977, 37 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Hafsúla BA 741