
Svalbakur EA 2 er hér á toginu á Flæmska hattinum um árið en myndina tók Ómar Örn Jónsson skipverji á Þórunni Havsteen ÞH 40.
ÚA keypti togarann frá Kanada og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar á Akureyri þann 22. apríl 1994.
Um skipið segir m.a eftirfarandi í júnítölublaði Ægis það ár:
Nýr skuttogari bœttist við flota Akureyringa 22. apríl sl., en þann dag kom Svalbakur EA 2 í fyrsta sinn til heimahafnar. Skuttogari þessi, sem áður hét Cape Adair, er smíðadur árið 1989 fyrir Kanadamenn hjá Qrskov Christensens Staal- skibsvœrft A/S í Frederikshavn í Danmörku, smíðanúmer 171 hjá stöðinni. Hönnun skipsins var í höndum Nordvestconsult A/S í Álesund í Noregi.
Hinn nýi Svalbakur EA kemur í stað Svalbaks EA 302 (sk.skr.nr. 1352), 781 rúmlesta skuttogara, smíðaður árið 1969, en keyptur til landsins árið 1973. Þess má geta að um- rœddur togari var flakavinnslutogari, þegar hann var keyptur til landsins, en sá búnaður tekinn úr honum. Jafnframt hverfur úr rekstri frystitogarinn Guðmunda Torfadóttir VE (2191), sem keyptur var til landsins á sl. ári, og lítill trébátur.
Svalbakur EA er í eigu Útgerðarfélags Akureyringa hf. Skipstjóri á skipinu er Kristján Halldórsson og yfirvélstjóri Bergur Bergsson. Framkvœmdastjóri útgerðar er Gunnar Ragnars.
Svalbakur EA 2 er 67.00 metrar að lengd og breidd hans er 14 metrar. Skipið mælist 1419 brl./2291 BT að stærð. Aðalvélin 4484 hestafla MAK.
Svalbakur fór úr landi árið 2000 og var gerður út frá Færeyjum undir nafninu Ocean Pride VN 555 og síðar gert út frá St. John á Nýfundnalandi nafninu Newfound Pioneer. Á þessu ári skipti togarinn um eigendur og heitir nú Dorado 2 og er heimahöfn hans nú Liepaia í Lettlandi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Þeir sem áhuga hafa á dagatali Skipamynda 2020 geta pantað sér eintak á korri@internet.is – Verðið er 3300 kr. Sent um land allt.