Þinganesið rautt og blátt

2040. Þinganes SF 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hér koma tvær myndir af Þinganesinu sem er eitt fjögurra systurskipa sem smíðuð voru á sínum tíma fyrir Íslendinga hjá Carnave Eir Navais Sa smíðastöðinni í Aveiro í Portúgal. Á efri myndinni er Þinganesið á útleið frá Húsavík í september árið 2012 en á þeirri neðri er … Halda áfram að lesa Þinganesið rautt og blátt

Sævík GK 757 kom að landi í Grindavík í dag

2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Sævík GK 757 kom til hafnar í Grindavík eftir að hafa róið frá Skagaströnd að undanförnu. Sævíkin landaði einum 5-6 tonnum en þetta var fyrsta löndun hennar í heimahöfn eftir breytingarnar sem framkvæmdar voru á bátnum í sumar. 2714. Sævík GK 757 … Halda áfram að lesa Sævík GK 757 kom að landi í Grindavík í dag

Gulltoppur GK 24 við bryggju á Siglufirði

2615. Gulltoppur GK 24 ex Ingibjörg SH 174. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Línubáturinn Gulltoppur GK 24, sem er í eigu Stakkavíkur ehf., er hér við bryggju á Siglufirði sl. föstudag. Gulltoppur GK 24 hét upphaflega Steinunn ÍS 817 og var smíðaður hjá Mótun í Hafnarfirði árið 2004. Hann var seldur til Siglufjarðar árið 2007 þar … Halda áfram að lesa Gulltoppur GK 24 við bryggju á Siglufirði

Garpur RE 148 á Húsavík

2018. Garpur RE 148 ex Garpur SH 95. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Garpur RE 148 kom til Húsavíkur í dag en til stendur að nota hann í kvikmynd sem á að taka hér. Samkvæmt skipaskrá er Góa ehf. eigandi Garps, sem smíðaður var hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989. Báturinn hét upphaflega Litlanes ÞH 52 og … Halda áfram að lesa Garpur RE 148 á Húsavík

Kaldbakur EA 1 fer vel af stað með nýtt vinnsludekk

2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Kaldbakur EA fór í sína fyrstu veiðiferð snemma í septembermánuði að aflokinni uppsetningu á nýjum og fullkomnum vinnslubúnaði frá Slippnum Akureyri.  Búnaðurinn í vinnslunni hefur reynst vel að sögn Angantýs Arnars, annars tveggja skipstjóra á Kaldbaki EA en frá þessu segir á heimasíðu Slippsins. “Við erum mjög … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 fer vel af stað með nýtt vinnsludekk

Haförn ÞH 26 kemur að landi á Húsavík

1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík í dag eftir róður á Skjálfanda. Haförn ÞH 26 hét áður Þorstein BA 1 frá Patreksfirði og smíðaður var í Garðabær árið 1989.  Upphaflega Faxafell GK 110, því næst Blíðfari GK 275, Mundi SF … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26 kemur að landi á Húsavík

Matthildur SH 67

241. Matthildur SH 67 ex Guðbjörg ÍS 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ólafsvíkurbáturinn Matthildur SH 67 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði eftir slipp um árið. Matthildur SH 67 hét upphaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. Smíðin fór fram í Djupvik í Svíþjóð og kom báturinn til heimahafnar á aðfaranótt … Halda áfram að lesa Matthildur SH 67

Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri

1472. Klakkur ÍS 903 ex Ísborg II ÍS 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ísafjarðartogarinn Klakkur ÍS 903, sem reyndar er skráður með heimahöfn á Flateyri, hefur verið í slipp á Akureyri að undanförnu. Tjaldtangi ehf. á Ísafirði er eigandi Klakks sem um stuttan tíma hét Ísborg II ÍS 260 en hét áður Klakkur SK 5, … Halda áfram að lesa Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri