1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hákon U. Seljan Jóhannsson 2019. Frystitogari Síldarvinnslunnar, Blængur NK 125, kom til Neskaupstaðar úr Barentshafinu í morgun. Á heimasíðu Síldarvinnlsunnar segir að skipið hafi haldið til veiða frá Neskaupstað hinn 3. júní sl. og hóf veiðar hinn 8. júní. Það var 29 daga á veiðum og … Halda áfram að lesa Blængur NK 125 gerði það gott í Barentshafinu
Day: 11. júlí, 2019
Skátinn GK 82
1373. Skátinn GK 82 ex Gustur SH 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Netabáturinn Skátinn GK 82 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni árið 2008. Skátinn GK 82 heitir Láki í dag og er gerður út til siglinga með ferðamenn frá Grundarfirði. Upphaflega hét báturinn Frosti ÞH 230 og var smíðaður fyrir Frosta h/f … Halda áfram að lesa Skátinn GK 82
Ocean Endavour á Húsavík
Ocean Endavour við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Farþegaskipið Ocean Endavour var á Húsavík í gær og tók Gaukur Hjartarson þessa mynd af skipinu við Bökugarðinn. Ocean Endavour siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau. Það var smíðað árið 1982 og mælist 12,907 GT að stærð. Lengd skipsins er 137,1 metrar og breidd þess … Halda áfram að lesa Ocean Endavour á Húsavík


