
Jón Júlí BA 157 við bryggju á Tálknafirði fyrir margt löngu síðan en myndina tók Hreiðar Olgeirsson.
Báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1955 og fékk nafnið Ingólfur SF 53. Mældist 39 brl. að stærð með Caterpillar 170 hestafla aðalvél. Eigandi Rafnkell Þorleifsson Hornafirði.
Báturinn var seldur á Eyrarbakka árið 1958 og fékk þá nafnið Faxi ÁR 25. Hét síðar Íslendingur II RE, Íslendingur II GK og Jón Júlí HU.
Seldur til Tálknafjarðar 1975. Heimild: Íslens skip.
Þórsberg hf. á Tálknafirði var eigandi Jóns Júlí BA 157 og þegar notkun hans lauk var honum komið fyrir á kambi við þorpið. Hvort hann sé þar enn er ég ekk viss um.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Sæll Hafþór.Heitir fyritækið ekki Þórsberg en ekki Þórsnes.
Líkar viðLíkar við
Jú auðvitað 🙂
Líkar viðLíkar við