Páll Pálsson ÍS 102

2904. Páll Pálsson ÍS 102. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025.

Páll Pálsson ÍS 102 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði á dögunum en hann það er Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. sem gerir hann út.

Sennilega var um prufusiglingu að ræða því hann kom inn aftur um kvöldið.

Togarinn var smíðaður hjá Huanghai Shipbuilding Co Ltd í Rongcheng í Kína. Kom hann til landsins vorið 2018 ásamt systurskipinu Breka VE 61.

Páll Pálsson og Breki eru hannaðir af verk­fræðistof­unni Skipa­sýn og eru um 50 metra langir og 13 metra breiðir.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd