
Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 fór á flot nú undir kvöld en hann hefur að undanförnu verið í flotkví í Hafnarfirði.
Eins og kunnugt er keypti Þorbjörn hf. í Grindavík togarann frá Grænlandi og kom hann til Hafnarfjarðar í lok maí.
Tómas Þorvaldsson GK 10 hét áður Sisimiut GR6-500 en upphaflega er um að ræða togara sem Skagstrendingur hf. á Skagaströnd lét smíða í Noregi árið 1992.
Arnar HU 1 hét hann og var seldur til Grænlands árið 1995 og fékk þá nafnið Sisimiut.
Tómas Þorvaldsson GK 10 er 67 metra langur og 14 metra breiður.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution