
Guðrún Jakobsdóttir EA 144 var gerð út af Snudda ehf. á Dalvík á árunum 2005-2006 og landaði m.a á Húsavík í september 2006.
Upphaflega hét báturinn á Íslenskri skipaskrá Arnar KE 260 og var gerður út frá Keflavík. Smíðaður árið 1987 í Noregi en keyptur til Íslands ári síðar.
Síðar var hann KE 160 um tíma en fékk svo nöfnin Hanna Kristín BA 244, HF 244 og SH 242. María Pétursdóttir VE 14, Guðrún Jakobsdóttir EA 144 og loks Aldan ÍS 47 sem hún ber í dag.
Báturinn hefur tvívegis verið lengdur, fyrst á Seyðisfirði og síðar á Akranesi og mælist nú 60 brl. að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.