Guðmundur Jónsson ST 17

2571. Guðmundur Jónsson ST 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018.

Línubáturinn Guðmundur Jónsson ST 17 er hér að færa sig á milli bryggja í Hólmavíkurhöfn í ágúst 2018.

Báturinn var smíðaður hjá Seiglu ehf. í Reykjavík árið 2003 og er af gerðinni Seigur 1160 og mælist 11,2 brl./14,9 BT að stærð.

Það er Sæfar ehf. á Hólmavík sem á og gerir Guðmund Jónsson ST 17 út.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

Færðu inn athugasemd