
Áskell Egillsson á siglingu á Eyjafirði sumarið 2017. Upphaflega Vöttur SU 3 smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1975.
Vöttur SU 3 hét síðar Vinur EA 80, Aðalbjörg II RE 236, Gulltoppur ÁR 321, Haförn ÞH 26, loks Ási ÞH 3.
Árið 2017 fær hann nafnið Áskell Egilsson eftir að hafa verið gerður upp til siglinga með ferðamenn. Eigandi er Halldór Áskelsson ehf. á Akureyri.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.