
Hér koma tvær myndir af norska skuttogaranum Gadus Njord sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók.
Það er útgerðin Havfisk í Noregi sem á Gadus Njord en á árunum 2013 og 2014 fékk fyrirtækið afhenta þrjá nýja togara eftir sömu teikningu, Gadus Poseidon, Gadus Njord og Gadus Neptun.
Gadus Njord og systurskipin tvö eru 69,8 metra löng og 15,6 metra breið.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.