
Það er alveg gráupplagt að fyrsta mynd Jóns Steinars á þessari síðu sé af Keili SI 145 enda hefur síðuhaldari sérstakar taugar til þessa fallega báts.
Þarna er hann að koma til hafnar í Grindavík á vetrarvertíðinni 2015.
Keilir var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1975 fyrir Korra h/f á Húsavík og hét Kristbjörg ÞH 44. Seldur Höfða h/f á Húsavík 1992 og fékk báturinn nafnið Kristey ÞH 25.
1997 var Kristey ÞH 25 seld Jökli h/f á Raufarhöfn þar sem hann fékk nafnið Atlanúpur ÞH 270. 1998 var Atlanúpur seldur Árnesi h/f í Þorlákshöfn og fékk hann nafnið Keilir GK 145.
Árið 2000 kaupir Siglfirðingur h/f bátinn sem heldur Keilisnafninu en verður SI 145 .
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.