2276. Ísbjörn ÍS 304 ex Borgin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Rækjufrystitogarinn Ísbjörn ÍS 304 frá Ísafirði kom til hafnar á Húsavík um miðjan janúar 2013 og þá var þessi mynd tekin. Það voru Rækjuvinnslan Kampi og útgerðarfélagið Birnir sem áttu skipið og gerðu út í nokkur ár. Ísbjörn, sem er 1103 GT að stærð, var … Halda áfram að lesa Ísbjörn ÍS 304
Month: desember 2022
Sigurpáll ÞH 68
6712. Sigurpáll ÞH 68 ex Nanna EA 12. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Grásleppubáturinn Sigurpáll ÞH 68 frá Húsavík kemur hér úr róðri í aprílmánuði árið 2013. Þorgeir Þorvaldsson átti bátinn og gerði út en hann var keyptur frá Hauganesi árið 1993. Þar hét hann nafnið Nanna EA 212 en þetta eru einu nöfnin sem báturinn … Halda áfram að lesa Sigurpáll ÞH 68
Gleðileg jól – Merry Christmas – God jul – Feliz Navidad
IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Með þessari mynd sem tekin var í Reykjavík fyrir ári síðan óska ég öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. God jul og tusinde … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry Christmas – God jul – Feliz Navidad
Nýr Cleopatra 50 til Fosnavåg
Ventura M-44_HØ. Ljósmynd Trefjar 2022. Útgerðarfélagið Ventura AS í Fosnavåg í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Aðaleigandi Ventura AS er Martin André Leinebø og leysir báturinn af hólmi eldri stálbát útgerðarinnar. Nýi báturinn ber nafnið Ventura, hann er 15 metrar á lengd og mælist 30brúttótonn. … Halda áfram að lesa Nýr Cleopatra 50 til Fosnavåg
Tveir nýir frá Trefjum
Ørsvåg III N-94-V - Ørsvåg II N-93-V. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Hér kemur myndasyrpa af tveim Cleopatra 33 bátum frá Trefjum sem fara til Noregs innan skamms og verður heimahöfn þeirra Svolvær. Myndirnar tók Maggi Jóns í Hafnarfirði og þær tala sínu máli þangað til nánari fréttir af bátunum koma frá Trefjum. Ørsvåg III N-94-V … Halda áfram að lesa Tveir nýir frá Trefjum
Siglt heim í jólafrí
1530. Sigurbjörg ÓF 1 - 1270. Mánaberg ÓF 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Á þessari mynd má sjá frystitogarana Sigurbjörgu ÓF 1 (nær) og Mánaberg ÓF 42 á siglingu frá Siglufirði til Ólafsfjarðar. Myndin var tekin 16. desember árið 2016 og togararnir nýbúnir að landa á Siglufirði og jólafríið framundan í heimahöfn. Þetta voru síðustu … Halda áfram að lesa Siglt heim í jólafrí
Óskar RE 157
962. Óskar RE 157 ex Óskar ÞH 380. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2010. Á þessari mynd Tryggva Sigurðssonar gefur að líta Óskar RE 157 í sinni síðustu siglingu en áfangastaðurinn var Ghent í Belgíu en þar var báturinn rifinn niður í brotajárn. Bátnum hefur verið gerð ágætis skil á síðunni en upphaflega, og lengst af, hét … Halda áfram að lesa Óskar RE 157
Jökull landar á Húsavík í dag
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík í morgun en hann hefur verið á línu síðustu mánuði en hann er ýmist gerður út til línu- eða netaveiða. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er … Halda áfram að lesa Jökull landar á Húsavík í dag
Faxaborg SH 207
1023. Faxaborg SH 207 ex Skarfur GK 666. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Línubáturinn Faxaborg SH 207 frá Rifi er hér á leiðinni í sleðann hjá Slippnum á Akureyri haustið 2006. Báturinn hét upphaflega Sléttanes ÍS 710 og var 268 brl. að stærð. Smíðaður fyrir Fáfni h/f á Þingeyri í Boizenburg í A-Þýskalandi árið 1967. Lesa … Halda áfram að lesa Faxaborg SH 207
Skeiðfaxi
1483. Skeiðfaxi lætur úr höfn á Akranesi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sementsflutningaskipið Skeiðfaxi var smíðaður á Akranesi árið 1977 og var 419 brl. að stærð, búinn 500 hestafla Caterpillar aðalvél. Sementsflutningaskipið var smíðað í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts hvar það var síðan rifið í brotajárn árið 2019. Skeiðfaxa hafði verið lagt árið 2013. Á vef Skagafrétta … Halda áfram að lesa Skeiðfaxi









