Jogvan 1 FD 710 kom til Ólafsvíkur

IMO: 9166118. Jogvan 1 FD 710 ex Atlantic. Ljósmynd Alfons Finnsson 2022. Frysti- og línuveiðiskipið Jogvan 1 frá Toftum í Færeyjum kom til hafnar í morgun í Ólafsvík vegna bilunar í beitningarvél.  Alfons Finnsson tók þessa mynd þegar frændur hans létur úr höfn eftir að viðgerð lauk. Skipið var smíðað í Solstrand Slip & Båtbyggeri … Halda áfram að lesa Jogvan 1 FD 710 kom til Ólafsvíkur

Þorbjörn hf. í Grindavík semur um smíði nýs ísfisktogara

Tölvuteiknuð mynd af hinu nýja skipi sem Þorbjörn í Grindavík lætur smíða á Spáni. Mynd Þorbjörn hf. 2022. Þorbjörn hf. í Grindavík hefur gert samning við Skipasmíðastöðina Armon í Gijón á Spáni um smíði á 58 metra löngum og 13,6 metra breiðum ísfisktogara. Ráðgert er að smíðinni ljúki á fyrri hluta ársins 2024. Frá þessu … Halda áfram að lesa Þorbjörn hf. í Grindavík semur um smíði nýs ísfisktogara

Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið

975. Sighvatur GK 57 - 2617. Daðey GK 777. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Þessi mynd var tekin 16. október árið 2004 og sýnir línubátinn Daðey GK 777 koma til hafnar á Húsavík. Utan á Þvergarðinum liggur línuskipið Sighvatur GK 57 þar sem verið var að ísa hann eftir löndun. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Sighvatur og Daðey á Húsavík um árið

Nýi Christian í Grótinum

IMO 9915430. Christian í Grótinum KG 690. Ljósmynd vonin.com 2022. Nýr Christian í Grótinum KG 690 er kominn í flota Færeyinga og er þetta einkar glæsilegt skip. Þessi mynd var tekin þegar skipið kom til Fuglafjarðar í dag að sækja veiðarfæri hjá Vónin P/F en myndin er fengin af Fésbókarsíðu fyrirtækisins og birt með leyfi … Halda áfram að lesa Nýi Christian í Grótinum

Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum

IMO 9686596. Høgaberg FD-110 ex Torbas. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Færeyska uppsjávarveiðiskipið Høgaberg FD-110 kom til Vestmannaeyja undir kvöld og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd. Skipið er í eigu útgerðarfélagsins Framherja og er með heimahöfn í Fuglafirði. Høgaberg hét upphaflega Torbas SF-4-V og var smíðað árið 2015. Það var selt til Færeyja árið 2017 og … Halda áfram að lesa Høgaberg FD-110 í Vestmannaeyjum

Bátar við bryggju á Árskógssandi

Bátar við bryggju á Árskógssandi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hér gefur að líta nokkra smábáta við bryggju á Árskógssandi árið 2000. Og einn á legunni. Við bryggjuna eru fv. Særún EA 251, Óli Lofts EA 23 og Kópur EA 325. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Árskógssandi

Markus GR-6-84 á toginu

IMO: 9826706. Markus GR-6-84. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2022. Hér koma sjóðheitar myndir sem Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók í kvöld og sýnir grænlenska rækjutogaranum Markus GR-6-84. Þarna er hann að veiðum við A-Grænland og eins og sjá má í blíðskaparveðri. Reyndar fyrsti dagurinn í yfirstandandi veiðferð hjá Reval Viking sem það er logn og … Halda áfram að lesa Markus GR-6-84 á toginu