Þorgrímur SK 27

2104.Þorgrímur SK 27 ex Mummi GK 121. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þorgrímur SK 27 frá Hofsósi kemur hér að landi á Siglufirði í vikunni en hann er á handfæraveiðum. Eigandi Jónas Þór Einarsson. Þorgrímur hét upphaflega Jón Björn HF 77 og er 6 brl. að stærð. Báturinn var smíðaður af Fossplasti hf. árið 1990 en … Halda áfram að lesa Þorgrímur SK 27 →

Særún EA 251

2711. Særún EA 251 ex Elli P SU 206. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Særún EA 251 kemur hér til hafnar á Árskógssandi í gærmorgun en hún er á handfæraveiðum. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði.  … Halda áfram að lesa Særún EA 251 →

Rósborg SI 29

6579. Rósborg SI 29 ex Rósborg ÍS 29. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Rósborg SI 29 kemur hér úr róðri í gær Ólafur Baldur Gunnarsson gerir hann út frá Siglufirði. Rósborg hét upphaflega Silvía HF 152 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1984. Árið 1998 var hann keyptur til Suðureyrar við Súgandafjörð þar … Halda áfram að lesa Rósborg SI 29 →

Berglín heldur til veiða

1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjutogarinn Berglín GK 300 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hún lét aftur úr höfn undir kvöld. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Berglín heldur til veiða →

Wilson Nantes við Bökugarðinn

Wilson Nantes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Wilson Nantes liggur nú við Bökugarðinn en verið er að skipa upp hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka. Skipið hefur komið til Húsavíkur áður og það í sömu erindagjörðum. Skipið var smíðað árið 2011 og siglir undir fána Möltu með heimahöfn í Walletta. Það er 123 metra langt og … Halda áfram að lesa Wilson Nantes við Bökugarðinn →

Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun

2672. Halldór NS 302 ex Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Halldór NS 302 frá Bakkafirði kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar hann var hífður hið snarasta á land til skverunar.  Hann er í eigu Halldórs fiskvinnslu ehf. á Bakkafirði sem er í eigu GPG Seafood á Húsavík. … Halda áfram að lesa Halldór NS 302 kom til Húsavíkur í morgun →

Harðbakur á útleið frá Grindavík

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir af Harðbak EA 3 þar sem hann var á útleið frá Grindavík síðdegis í dag. Harðbakur hafði komið til hafnar í morgun vegna bilerís og landaði 26 tonnum en togarinn hafði nýhafið veiðiferð þegar bilunin kom upp. 2963. Harðbakur EA 3. … Halda áfram að lesa Harðbakur á útleið frá Grindavík →