
Oddur á Nesi ÓF 176 kemur hér að landi á Siglufirði í dag en hann rær með línu.
Oddur á Nesi hét upphaflega Venni GK 167 og átti heimahöfn í Grindavík. Síðar Ragnar SF 550, því næst Guðmundur Sig. SF 650.
Næsta nafn var Selnes SU 14 og loks Rósi ÍS 54 áður en hann fékk nafnið Hafrún ÍS 54en það hét báturinn þegar hann var keyptur til Fjallabyggðar vorið 2019.
Báturinn er af gerðinni Víkingur 1135 og smíðaður af Bátagerðinni Samtak ehf. árið 2004. Hann var yfirbyggður síðar en báturinn er 12,06 metrar að lengd, breidd hans er 3,73 metrar. Hann mælist 11,29 brl./14,92 BT að stærð.
Eigandi Odds á Nesi er BG Nes ehf. á Siglufirði.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution