Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði

1326. Stálvík SI 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Stálvík SI 1 er hér við bryggju á Siglufirði, sennilega vorið eða sumarið 1989. Stálvík var fyrsti skuttogarinn sem smíðaður var á Íslandi og fór smíðin fram árið 1973 í Stálvík hf. í Garðabæ. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma hf. á Siglufirði og var 314 brl. … Halda áfram að lesa Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði

Þröstur ÓF 42

6931. Þröstur ÓF 42 ex Smári ÓF 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Þröstur ÓF 42 kemur hér að landi á Siglufirði fyrir skömmu en hann hét upphaflega Smári ÓF 20 en hann var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak ehf. í Hafnarfirði árið 1987. Það er Frímann Ingólfsson sem á og gerir Þröst út en hann … Halda áfram að lesa Þröstur ÓF 42

Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi

Nygrunn N-225-VV. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Nygrunn AS í Lófóten í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Eigendur Nygrunn AS eru bræðurnir Ørjan og Ketil Sandnes. Nýi báturinn heitir Nygrunn og er 15 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri eikarbát útgerðarinnar sem … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi

Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur

IMO:1013078. Satori. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur nú í hádeginu eftir siglingu frá Akureyri. Satori er tveggja skrúfu skip, knúið af tveimur 1876 hestafla vélum og siglir undir fána Cayman eyja. Snekkjan, sem er 63 metrar að lengd og 11,9 metra breidd, mælist 1,584 GT að stærð. Hún var smíðuð hjá … Halda áfram að lesa Lúxussnekkjan Satori kom til Húsavíkur

Hríseyjarferjan Sævar

2378. Sævar. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hríseyjarferjan Sævar kemur hér að landi á Árskógssandi á dögunum en hún er með heimahöfn í Hrísey. Sævar var smíðaður í Reykjavík árið 1999 en kom fyrst til Hríseyjar sumarið 2000. Sævar mælist 149 BT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hríseyjarferjan Sævar

Sylvía og Faldur

1468. Sylvía og 1267. Faldur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátar Gentle Giants í morgun, Sylvía að fara frá bryggju og Faldur klár í fyrstu ferð dagsins. Og ekki skemmir veðurblíðan fyrir maður minn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Sylvía og Faldur

Nýr bátur á Húsavík

7311. Hanna Ellerts SH 4 ex Korri SH 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýr bátur, Hanna Ellerts SH 4, kom til Húsavíkur eftir siglingu frá Stykkishólmi þaðan sem báturinn var keyptur. Um er að ræða níu metra langan Sómabát, smíðaðan árið 1991 í Bátasmiðju Guðmundar. Upphaflega hét báturinn Þyrí HF 42 en hefur í gegnum … Halda áfram að lesa Nýr bátur á Húsavík

Jón Ásbjörnsson RE 777 á Siglufirði

2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hérna kemur myndasyrpa af línubátnum Jóni Ásbjörnssyni RE 777 sem ég tók á Siglufirði fyrir skömmu. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni Víkingur 1200. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Vigur ehf. á Hornafirði … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE 777 á Siglufirði

Konsúll kemur úr hvalaskoðun

2938. Konsúll. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Farþegabáturinn Konsúll kemur hér úr hvalaskoðun á Eyjafirði í gær undir öruggri skipstjórna Adda skólabróður. Konsúll var smíðaður árið 1985 en bættist í hvalaskoðunarflota Íslendinga vorið 2017 þegar SHB Hvalaskoðun ehf. keypti hann frá Noregi. Ambassador ehf. gerði hann út til hvalaskoðunar frá Akureyri en í dag er báturinn … Halda áfram að lesa Konsúll kemur úr hvalaskoðun