Grímsnes GK 555

89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Njarðvík fyrir helgi en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. Upphaflega hét báturinn Heimir SU 100 frá Stöðvarfirði, smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk As í Noregi 1963 fyrir Varðarútgerðina hf á … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555

Kristján HF 100 kemur að landi

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Kristján HF 100 kemur hér að landi í Grindavík í sl. föstudagskvöld en hann er gerður út af Fiskvinnslunni Kambi hf. í Hafnarfirði. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur að landi

Nivenskoye kom og fór

IMO 8843018. Nivenskoye K 1966. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Rússneski togarinn Nivenskoyen kom til Hafnarfjarðar í gærmorgun og fór aftur um miðjan daginn. Togarinn, sem var smíðaður árið 1991, er 104 metrar að lengd, 16 metra breiður og mælist 4,407 GT að stærð. Heimahöfn Nivenskoye er Kalinigrad sem er rússnesk borg við Eystrasalt. Borgin og … Halda áfram að lesa Nivenskoye kom og fór

Hópsnes GK 77

2457. Hópsnes GK 77 ex Katrín SH 575. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Hópsnes GK 77 var sjósett í gær eftir skveringu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og voru þessar myndir teknar þá. Fyrst fór báturinn inn í Keflavíkurhöfn en sigldi til Grindavíkur síðar um daginn og va stefnt að róðri í gærkveldi. Ekki er langt síðan … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77

Bergvík GK 22 kemur að landi í Keflavík

2617. Bergvík GK 22 ex Daðey GK 707. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Bergvík KE 22 kemur hér að landi í Keflavík í dag en báturinn er gerður út af GunGum ehf. til netaveiða. Bergvík var smíðuð hjá Mótun ehf í Njarðvík 2004 og hét upphaflega Daðey GK 777. Báturinn var yfirbyggður línubátur en þegar GunGum … Halda áfram að lesa Bergvík GK 22 kemur að landi í Keflavík

Langanes GK 525

1202. Langanes GK 525 ex Grundfirðingur SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Netabáturinn Langanes GK 552 sem Grímsnes ehf. gerir bátinn út kom að landi í Njarðvík í dag og þá voru þessar myndir teknar. Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og  var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Smíðanúmer 18 … Halda áfram að lesa Langanes GK 525

Margrét GK 33 kemur að landi

2933. Margrét GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línubáturinn Margrét GK 33 kemur hér að landi í Sandgerði í gærkveldi og Sigurfari fylgir í humátt á eftir. Það er Nesfiskur ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Víkingbátum árið 2019. Margrét GK 33 er tæplega 22 BT að stærð en lengd hennar … Halda áfram að lesa Margrét GK 33 kemur að landi