
Netabáturinn Langanes GK 552 sem Grímsnes ehf. gerir bátinn út kom að landi í Njarðvík í dag og þá voru þessar myndir teknar.
Báturinn hét upphaflega Þorlákur ÁR 5 og var smíðaður hjá Stálvík í Garðabæ 1972 fyrir Meitilinn h/f í Þorlákshöfn. Smíðanúmer 18 frá þeim og afhentur í upphafi árs.
Árið 1977 fékk hann nafnið Brimnes SH 257 og 1979 Rita NS 13, heimahöfn Vopnafjörður. Á vetrarvertíðinn 1982 er báturinn kominn til Hafnarfjarðar þar sem hann fék nafnið Hringur GK 18.
Í upphafi árs 2001 var báturinn keyptur til Grundarfjarðar, kaupandinn Soffanías Cesilsson hf., og fékk hann nafnið Grundfirðingur SH 24.
Það var svo árið 2019 sem Grímsnes ehf. keypti bátinn og nefndi Langanes GK 525.
Báturinn var lengdur 1973, yfirbyggður 1985 og aftur lengdur 1990, þá var honum slegið út að aftan og skipt um brú 1990. Hann mælist 151 brl./255 BT að stærð. Aðalvél 775 hestafla Caterpillar frá 1998. Upphaflega var hann 105 brl. að stærð.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution