
Bergvík KE 22 kemur hér að landi í Keflavík í dag en báturinn er gerður út af GunGum ehf. til netaveiða.
Bergvík var smíðuð hjá Mótun ehf í Njarðvík 2004 og hét upphaflega Daðey GK 777. Báturinn var yfirbyggður línubátur en þegar GunGum keypti hann 2018 var honum breytt til netaveiða.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution