
Línubáturinn Sandfell SU 75 er hér á landleið til Grindavíkur en Jón Steinar tók þessar myndir af bátnum sl. laugardag.
Aflinn tæp 15 tonn samkvæmt vef Fiskistofu.
Sandfell er í eigu Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði og hét áður Óli á Stað GK 99.
Báturinn er smíðaður hjá Seiglu á Akureyri 2014. er 14,8 m langur, 5,6 m breiður og er um 29,63 BT að stærð.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution