Víkingur á toginu

220. Víkingur AK 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víkingur AK 100 frá Akranesi er hér á toginu á rækjumiðunum úti fyrir Norðurlandi, sennilega sumarið 1988. Um Víking er litlu við að bæta enda hefur hann áður borið fyrir augu þeirra sem sækja síðuna heim. Sögu Víkings AK 100 má lesa í greina Haraldar Bjarnasonar í Skessuhorni Með … Halda áfram að lesa Víkingur á toginu

Beggi á Tóftum SF 222

259. Beggi á Tóftum SF 222 ex Valdimar Sveinsson VE 22. Ljósmynd Kristján Helgason. Beggi á Tóftum SF 222 var keyptur til Ólafsvíkur haustið 2000 og fékk nafnið Bervík SH 143. Báturinn, sem áður hét Valdimar Sveinsson VE 22, hafði borið nafnið Beggi í Tóftum SF 222 um nokkurra mánaða skeið. Upphaflega hét báturinn Súlan … Halda áfram að lesa Beggi á Tóftum SF 222

Rauðinúpur ÞH 160

2262. Rauðinúpur ÞH 160 e Júlíus Havsteen ÞH 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Rauðinúpur ÞH 160 er hér á siglingu vorið 1999 en þarna var hann nýkominn úr breytingum í Póllandi og var að fara í sinn fyrstu veiðiferð eftir það. En það var tekinn myndahringur þegar haldið var á miðin frá Húsavík. Rauðinúpur ÞH … Halda áfram að lesa Rauðinúpur ÞH 160

Anna HF 39

284. Anna HF 39 ex Anna ÓF 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Anna HF 39 kemur hér til hafnar í Reykjavík um miðbik níunda áratugar síðustu aldar en báturinn var með heimahöfn í Hafnarfirði árin 1984-1993. Upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Anna HF 39

Pétur Sigurðsson RE 331

708. Pétur Sigurðsson RE 331. Ljósmynd Kristján Helgason. Á þessari mynd Kristjáns Helgasonar má sjá Pétur Sigurðsson RE 331 sem var smíðaður í Landssmiðjunni í Reyjavík árið 1956. Hann var smíðaður fyrir Sigurð Pétursson í Djúpuvík á Ströndum. Báturinn, sem var 35 brl. að stærð búinn 240 hestafla GM vél, var seldur í desember 1957 … Halda áfram að lesa Pétur Sigurðsson RE 331

Björn Kristjónsson SH 164

7716. Björn Kristjónsson SH 164. Ljósmynd Vigfús Markússon. Björn Kristjónsson SH 164 var smíðaður fyrir Jóhann Steinsson í Ólafsvík hjá Bátasmiðjunni Bláfelli árið 2012. Báturinn, sem er 6,15 brl. að stærð og búinn 275 hestafla Cumminsvél, er með heimahöfn í Ólafsvík. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. … Halda áfram að lesa Björn Kristjónsson SH 164

Knörrinn kom með Sölku

306. Knörrinn - 1438. Salka GK 79. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Þann 1. júní 2012 kom Knörrinn með Sölku GK 79 norður til Húsavíkur en Norðursigling hafði þá eignast bátinn. Rúmum fjórum árum síðar hóf hann siglingar á Skjálfanda eftir að hafa verið endurbyggður sem rafknúinn hvalaskoðunarbátur. Salka var smíðuð á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta … Halda áfram að lesa Knörrinn kom með Sölku