
Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 hét upphaflega Magnús NK 72 og var smíðaður fyrir Ölver hf. á Neskaupsstað.
Smíðin fór fram árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263. Magnús, sem var 274 brl. að stærð, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í marsmánuði 1967.
Um Magnús NK 72 má lesa hér en hann var seldur til Grindavíkur í febrúarmánuði 1988. Þá fékk hann nafnið Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11. Í september sama ár fékk báturinn nafnið Valaberg GK 399, eigandi Sigluberg hf. í Grindavík.
Meira um bátinn síðar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
er þetta sá sem er Saxhamar SH 50, nr.1028, þessi Hrafn er 1031
Líkar viðLíkar við
Nei hann hét Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
Líkar viðLíkar við