Danavik kom með sement til Helguvíkur

IMO 8221363. Danavik ex Klc Banshee. Ljósmynd KEÓ 2020. Flutningaskipið Danavik kom fulllestað sementi til Helguvíkur í gærkveldi og tók Karl Einar Óskarsson hafnarvörður þessa mynd þá. Akkúrat mánuður er síðan myndir af skipinu birtust á síðunni og þá var skrifað: Danavik, sem siglir undir fána Marshalleyja, var smíða árið 1983. Það er 104 metrar … Halda áfram að lesa Danavik kom með sement til Helguvíkur

Hraðfrystihús Hellissands kaupir Esjar SH 75

2330. Esjar SH 75. Ljósmynd Alfons Finnsson. Hraðfrystihús Hellissands hefur keypt dragnótarbátinn Esjar SH 75 ásamt 660 tonna veiðiheimildum. Skessuhorn greinir frá Esjar SH 75 var smíðaður hjá Ósey í Hafnarfirði árið 1999 og hefur alla tíð heitið sama nafni. Báturinn var lengdur árið 2002 og mælist í dag 55 brúttótonn að stærð. Með því … Halda áfram að lesa Hraðfrystihús Hellissands kaupir Esjar SH 75

Ólafur Magnússon HU 54

2183. Ólafur Magnússon HU 54 ex Halla Sæm SF 23. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Jón Steinar tók þessar myndir í gær af handfærabátnum Ólafi Magnússyni HU 54 þar sem hann var að veiðum rétt innan við Kálfshamarsvík við Húnaflóa. Báturinn var smíðaður fyrir Þórólf hf. á Hornafirði hjá Mótun í Hafnarfirði árið 1992, hét hann … Halda áfram að lesa Ólafur Magnússon HU 54

Kristborg SH 108

2441. Kristborg SH 108 ex Tindaröst BA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Kristborg SH 108 hét upphaflega Tindaröst BA 15 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar árið 2000 fyrir Davíð Páll Bredesen á Patreksfirði. Þar voru þessar myndir teknar á dögunum en Kristborg, sem er Sómi 870, er á strandveiðum. Árið 2005 var Tindaröst seld … Halda áfram að lesa Kristborg SH 108

Erling KE 140 kom til Húsavíkur í dag

233. Erling KE 140 ex Óli á Stað GK 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Netabáturinn Erling KE 140 hefur landað á Húsavík að undanförnu eins og lesendur síðunnar hafa eflaust tekið eftir. Þegar það er ekki mikið um báta til að mynda vill það brenna við að maður myndar mikið sama bátinn og nú er … Halda áfram að lesa Erling KE 140 kom til Húsavíkur í dag

Heiðrún EA 28

72. Heiðrún EA 28 ex Grótta AK 101. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd af Heiðrúnu EA 28 frá Árskógssandi var tekin á Vopnafirði um árið þegar síldveiðar voru stundaðar inn á fjörðum Austanlands. Báturinn hét upphaflega Grótta RE 128 og var byggður í Harstad í Noregi 1963. Þá mældist hann 184 brl. að stærð. Upphaflegur eigandi … Halda áfram að lesa Heiðrún EA 28

Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag

2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Skinney SF 20 kom til löndunar í Grindavík í dag en hún er á humarveiðum sem ganga tregla nú sem síðustu ár. Skinney, var líkt og systurskipið Þórir SF 77,  smíðuð hjá Ching Fu Shipbuilding co.,LTD skipasmíðastöðinni í Taiwan árið 2008 fyrir Skinney-Þinganes hf. á Höfn í … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 kom til Grindavíkur í dag