IMO 9822853. Dettifoss. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Dettifoss, nýtt skip Eimskipafélags Íslands, kom til hafnar í Reykjavík í dag og tók Jón Steinar meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Dettifoss, sem er stærsta gámaskip í sögu íslenska kaupskipaflotans, var smíðað í Kína og tók heimsiglingin 68 daga með viðkomu í Singapúr, Sri Lanka, Suez, Rússlandi … Halda áfram að lesa Nýr Dettifoss kom til landsins í dag
Day: 13. júlí, 2020
Lóa KÓ 177
2368. Lóa KÓ 177 ex Stína SU 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Lóa KÓ 177 hét uphaflega Knörr AK 805 en hún var smíðuð árið 1999 í Bátasmiðjunni Knörr á Akranesi. Lóa KÓ 177 er 7,70 BT að stærð og er þessa dagana gerð út til strandveiða frá Patreksfirði þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar … Halda áfram að lesa Lóa KÓ 177
Ný Cleoptara 42 til Álasunds
M/S Tare. Ljósmynd Trefjar 2020. Stein Magne Hoff útgerðarmaður frá Ålesund í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan bát frá Bátasmiðjunni Trefjum ehf. í Hafnarfirði. Báturinn, sem er af gerðinnni Cleopatra 42, fékk nafnið M/S Tare og er Stein Magne skipstjóri á bátnum en tveir verða í áhöfn. Báturinn er kominn til Noregs. Báturinn … Halda áfram að lesa Ný Cleoptara 42 til Álasunds
Arnarnes
2979. Arnarnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Arnarnes, einn af bátum Arctic Fish, kemur hér að bryggju á Tálknafirði í fyrri viku en hann er með heimahöfn á Patreksfirði. Báturinn var smíðaður í Moen Marin Service As í Noregi árið 2018 en kom til heimahafnar vorið 2019. Arnarnes sem þjónustar sjókvíaeldi Arctik Fish, er vel útbúinn … Halda áfram að lesa Arnarnes
Ea & Emmy
Ea N-10-SO og Emmy N-111-Ø í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Magnús Jónsson 2020. Maggi Jóns tók þessa mynd í Hafnarfirði um helgina en á henni eru tvær Cleopötrur 31 sem Trefja smíðuðu fyrir útgerðir i Noregi. Ea sem liggur nær bryggjunni fer til Sortland en Emmy á heimahöfn í Alsvåg. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Ea & Emmy




