
Línuskipið Hörður Björnsson ÞH 260 landaði um 50 tonnum á Raufarhöfn í gær og voru meðfylgjandi myndir teknar þegar hann lét úr höfn um kaffileytið.
Það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir Hörð Björnsson út og er hann með heimahöfn á Raufarhöfn.
Upphaflega hét skipið Þórður Jónasson, fyrst RE 350 en lengst af EA 350. Smíðaður í Noregi 1964.
GPG Seafood ehf. keypti hann frá Stykkishólmi árið 2015 en þar hét hann Gullhólmi SH 201.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution


