2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línuskipið Páll Jónsson GK 7 kom til heimhafnar í Grindavík í dag eftir heimsiglingu frá Póllandi. Á heimasíðu Vísis hf. segir að rúmlega 2 ár séu liðin frá undirritun og stór áfangi fyrir Vísi að fá skipið í heimahöfn. Þetta er fyrsta nýsmíðin af þessarri stærðargráðu … Halda áfram að lesa Nýr og glæsilegur Páll Jónsson GK 7 kominn í heimahöfn
Month: janúar 2020
Sigþór
185. Sigþór ÞH 100 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984. Í dag var ég við útför Harðar Þórhallssonar skipstjóra og útgerðarmanns frá Húsavík en hann var faðir Hödda vinar míns. Mér finnst við hæfi að birta mynd af bátnum sem þeir feðgar sóttu sjóinn saman á en það var Sigþór ÞH 100 sem … Halda áfram að lesa Sigþór
Bergey VE 144 kom til heimahafnar í dag
2964. Bergey VE 144. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2020. Skömmu fyrir hádegi í dag kom hin nýja Bergey VE til hafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn og var vel fagnað eftir því sem segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Bergey var afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, hinn 1. október sl. og kom til Akureyrar hinn 6. október. Á Akureyri … Halda áfram að lesa Bergey VE 144 kom til heimahafnar í dag
Viðræðum um sameiningu formlega hætt en góðu samstarfi haldið áfram
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Grímur Gíslason 2020. Viðræður um mögulega sameiningu sem hófust sl. haust hefur formlega verið hætt hjá eigendum Vísis hf og Þorbjarnar hf. en ákveðið hefur verið að halda áfram góðu samstarfi fyrirtækjanna tveggja. Í tilkynningu frá fyrirtækjunum segir að fjölmargir vinnuhópar hafi verið skipaðir til að skoða alla snertifleti … Halda áfram að lesa Viðræðum um sameiningu formlega hætt en góðu samstarfi haldið áfram
Lenneborg í Grindavík
IMO 9421075. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Flutningaskipið Lenneborg kom til Grindavíkur sl. þriðjudag með saltfarm og hélt svo út í morgun að losun lokinni. Lenneborg er smíðað hjá Nanjing Huatai Shipyard Co., Ltd. í Kína árið 2008. Lenneborg er 108 metrar að lengd og 18,2 metrar. á breidd og siglir undir hollensku flaggi, með heimahöfn … Halda áfram að lesa Lenneborg í Grindavík
Nýr Páll Jónsson GK 7 lagður af stað heim
2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Grímur Gíslason 2019. Páll Jónsson GK 7, línuskip Vísis hf., lét úr höfn í Gdansk um hádegisbil í gær áleiðis til heimahafnar í Grindavík. Á heimasíðu Vísis segir að áætlaður siglingartími velti á veðurskilyrðum en búist er við að það taki skipið um 5-7 daga. Væntanlegur komutími til Grindavíkur … Halda áfram að lesa Nýr Páll Jónsson GK 7 lagður af stað heim
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 ex Snæfell EA 740. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5 tók þessar myndir af frystitogaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni GK 255 nú í upphafi árs. Togarinn var smíðaður í Flekkefjord í Noregi árið 1988 fyrir Hríseyinga en seldur til Grindavíkur síðla árs 1989. Það var … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson GK 255
Sæbjörg ST 7
554. Sæbjörg ST 7 ex Fanney SH 24. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Sæbjörg ST 7 hét upphaflega Hávarður ÍS 160 og var smíðaður í Danmörku árið 1959 fyrir Ísver h/f á Suðureyri við Súgandafjörð. Báturinn var 76 brl. að stærð búinn 310 hestafla Alpha aðalvél. Henni var skipt út fyrir aðra sömu tegundar árið 1974. … Halda áfram að lesa Sæbjörg ST 7
Haukur GK 134
1378. Haukur GK 134 ex Haukur GK 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1991. Haukur GK 134 liggur hér við bryggju í Sandgerði og bíður örlaga sinna sem voru þau að hann var seldur úr landi. Þarna var nýr Haukur GK 25 kominn til sögunnar og þessi, sem upphaflega hét Framtíðin KE 4, hafði fengið nýtt númer, … Halda áfram að lesa Haukur GK 134
Björg Jónsdóttir ÞH 321
1508. Björg Jónsdóttir ÞH 321 Höfðavík AK 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1996. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar í apríl 1996 þegar ný Björg Jónsdóttir ÞH 321 kom til heimahafnar í fyrsta skipti. Þetta var sú sjötta í röðinni ef rétt er munað. Þriðjudaginn 23. apríl 1996 birtist eftirfarandi frétt í Degi og til … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321









