
Línuskipið Páll Jónsson GK 7 kom til heimhafnar í Grindavík í dag eftir heimsiglingu frá Póllandi.
Á heimasíðu Vísis hf. segir að rúmlega 2 ár séu liðin frá undirritun og stór áfangi fyrir Vísi að fá skipið í heimahöfn. Þetta er fyrsta nýsmíðin af þessarri stærðargráðu í rúmlega 50 ára sögu Vísis.
Þetta er glæsilegt þriggja þilfara nýsmíði, 45 metra á lengd og 10,5 metra á breidd, hannað af íslensku skipahönnunarstofunni Navis í samvinnu við Vísi. Skipið er með Mustad Autoline línukerfi frá Ísfell ehf. og er þar með fyrsta íslenska skipið með sjálfvirku rekkakerfi sem léttir á álagi og vinnu um borð.

Vinnslubúnaðarinn, sem mun bæta alla aflameðhöndlun, svo sem blæðingu, kælingu, flokkun og frágang afla í lest er frá Skaginn 3X og er verkefnið að hluta til unnið í samstarfi við Marel. Það ríkir mikil tilhlökkun að fá skipið heim og mun það styðja enn betur við stefnu fyrirtækisins um ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og vörugæði sem leiðir til framleiðslu afurða úr fyrsta flokks hráefni.
Skipamyndir.com óskar Vísi hf. til hamingju með nýja skipið.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution