
Þórsnes SH 109 kom til heimahafnar í Stykkishólmi í júnímánuði 2017 en það var keypt notað frá Noregi.
Þórsnesið er 880 brúttótonna línu- og netaskip. 43,3 metrar á lengd og 10,5 metrar á breidd.
Skipið var smíðað árið 1996 og er því mun yngra en gamla Þórsnesið sem það mun leysa af, það var smíðað árið 1964 og hét upphaflega Keflvíkingur KE 100.
Þórsnesið hét áður Veidar 1 M-76-G frá Álasundi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.