208. Sæfari AK 55 ex Kópur EA 33. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Sæfari AK var smíðaður fyrir Ríkissjóð Íslands í Svíþjóð árið 1947 og mældist 102 brl. að stærð. Upphaflega hét báturinn Haukur 1 ÓF 5 og var í eigu Hauks h/f á Ólafsfirði. Seldur 1957 Fiskvinnslunni h/f á Akureyri og fékk báturinn nafnið Kópur … Halda áfram að lesa Sæfari AK 55
Day: 24. desember, 2018
Jólakveðja – Merry Christmas
Smábátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Óska öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by.
Helgi Helgason VE 343
94. Helgi Helgason VE 343. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Helgi Helgason VE 343 við bryggju á Siglufirði að landa síld. Helgi Helgason VE 343 var smíðaður í Vestmannaeyjum árið 1947 en talinn ónýtur og tekinn af skrá árið 1965. Upphaflega 500 hestafla June Munktell aðalvél en henni var skipt út fyrir 600 hestafla Gutaverken vél. … Halda áfram að lesa Helgi Helgason VE 343


