
Línuskipið Kristrún RE 177 er í eigu Fiskkaupa hf. sem keypti skipið frá Kanada árið 2008 en þar hét það Appak og var í eigu Norðmanna.
Upphaflega hét Kristrún RE 177 Staalbjørn, þá Stalbjørn og Eldfisk áður en það fékk Appaknafnið. Kristrún var smíðuð í Solstrand í Noregi 1988 en hefur verið lengd, mælist nú 47.7 metrar og 765 brúttótonn.
Óskar Franz tók þessa mynd í aprílmánuði 2017 þegar Kristrún kom til löndunar í sinni heimahöfn, Reykjavík.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.