
Togarinn Ljósafell SU 70 frá Fáskrúðsfirði er hér að toga inn á Eyjafirði haustið 2017 en þá var hann í togararalli fyrir Hafró.
Ljósafell SU 70 var smíðað 1973 í Japan en fór í umtalsverðar breytingar og endurbætur í Póllandi 1989 og aftur 2007. Skipið er 55,9 m langt, 9,5 m breitt og er um 844 BT að stærð.
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði er eigandi og útgerðaraðili Ljósafellssins sem sér frystihúsi fyrirtækisins fyrir hráefni.
Ljósafell SU 70 er einn Japanstogaranna svokölluðu en þeir voru tíu talsins og smíðaðir fyrir Íslendinga á fyrri hluta áttunda áratugarins.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.