IMO 9361122. Fri Bergen ex Rachel. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Norska flutningaskipið Fri Bergen kom að bryggju á Húsavík í morgun eftir að hafa lónað á Skjálfanda frá því í gær. Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar hráefnisfarmi fyrir PCC á Bakka er skipað upp. Eins og kom fram í færslu í gær var skipið smíðað … Halda áfram að lesa Fri Bergen kom að bryggju í morgun
Month: maí 2023
Dagfari og Náttfari
1470. Dagfari - 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það er bræla á Skjálfanda í dag og hér liggja saman við bryggju hvalaskoðurbátar Norðursiglingar, Dagfari og Náttfari. Gömul og góð bátanöfn í útgerðarsögu Húsavíkur. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Dagfari og Náttfari
Fri Bergen
IMO 9361122. Fri Bergen ex Rachel. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Norska flutningaskipið Fri Bergen kom siglandi inn á Skjálfanda í morgun og hefur lónað um flóann í dag. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað í Hollandi árið 2009 og hét Flinterrachel til ársins 2016. Þá fékk það nafnið Rachel og … Halda áfram að lesa Fri Bergen
Grímsnes GK 555
1849. Grímsnes GK 555 ex Fúsi SH 162. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Grímsnes GK 555 frá Grindavík kemur hér að landi í Njarðvík sumarið 2004 en báturinn var gerður út af samnefndu fyrirtæki. Báturinn heitir Dýrfiskur ÍS 96 í dag og er þjónustubátur við fiskeldi. En upphaflega hét hann Neptúnus NS 8 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Grímsnes GK 555
Óli Óla EA 77
7183. Óli Óla EA 77 ex María EA 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Óli Óla EA 77 frá Grímsey var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1989 og hét upphaflega Brimill HF 666. Árið 1990 fékk báturinn nafnið Askur ÁR 51 og með heimahöfn í Þorlákshöfn. Árið 1992 var báturinn kominn til Ólafsvíkur sem hét Askur SH … Halda áfram að lesa Óli Óla EA 77
Laxinn
5920. Laxinn ÞH 177 ex ex Laxinn GK 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Strandveiðibáturinn Laxinn við bryggju á Húsavík nú síðdegis, Reynir Hilmars að taka olíu fyrir næsta róður. Laxinn var smíðaður árið 1978 í Mótun og af þeirri gerð báta sem kölluðust Færeyingar. Það ku vera mjög lítið eftir af upprunalega bátnum en hann … Halda áfram að lesa Laxinn
Grindjáni GK 169
7325. Grindjáni GK 169 ex Grindjáni GK 25. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir af Grindjána GK 169 þar sem hann var á fullu ferðinni í land. Grindjáni hét upphaflega Toggi ÁR 75 og var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1991. Frá árinu 1994 hét báturinn Tindur SH-179, Ólafsvík. Frá árinu … Halda áfram að lesa Grindjáni GK 169
Heimaey VE 1
1035. Heimaey VE 1 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Heimaey VE 1 hét upphaflega Náttfari ÞH 60 og var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Barðann hf. á Húsavík í Boizenburg í Austur-Þýskalandi. Náttfari kom nýr til heimahafnar á Húsavík í aprílmánuði árið 1967 og skipstjóri á honum var Pétur Stefánsson. Náttfari var lengdur og yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1
Landað í morgunblíðunni
2370. Sigrún Hrönn ÞH 36. - 2783. Ásdís ÞH 136. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og segir hér í færslunni á undan kom grásleppubáturinn Ásdís ÞH 136 með góðan afla til hafnar á Húsavík í gærkveldi. Þegar hafist var handa við að landa úr bátnum í morgun kom að landi, og undir hinn kranann, strandveiðibáturinn … Halda áfram að lesa Landað í morgunblíðunni
Ásdís ÞH 136
2783. Ásdís ÞH 136 ex Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það var góður dagur í dag á Ásdísi ÞH 136 sem stundar grásleppuveiðar frá Húsavík. Báturinn kom að landi í kvöld með á sjöunda tonn en verið var að draga í fyrsta skipti þessa vertíðina. Áður höfðu kallarnir stundað grásleppuveiðar á öðrum … Halda áfram að lesa Ásdís ÞH 136









