Margrét EA 710

3038. Margrét EA 710 ex Christina S FR 224. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Guðmundur St. Valdimarsson tók þessa mynd af nýjasti fiskiskipi flotans á loðnumiðunum í dag, Margréti EA 710. Eins og kom fram á síðunni í vikunni keypti Samherji skipið frá Skotlandi þar sem það bar nafnið Christina S FR 224. Þetta er … Halda áfram að lesa Margrét EA 710

Svalbakur

1352. Svalbakur EA 302 ex Stella Karina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. ÚA togarinn Svalbakur EA 302 liggur hér við Torfunefsbryggju á Akureyri um árið en togarinn var smíðaður árið 1969. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru … Halda áfram að lesa Svalbakur

„Tvíburabátar“ afgreiddir til Lofoten í Noregi

Ørsvåg III N-94-V og Ørsvåg II N-93-V. Ljósmynd Trefjar 2023. Bræðurnir Tom-Kenneth og Kurth-Anders Slettvoll útgerðarmenn frá Kabelvåg í Lofoten fengu fyrir skömmu afhenta tvo nýja Cleopatra 33 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Um Tvíburabáta er að ræða og verða bræðurnir skipstjórar á bátunum. Nýju bátarnir heita Ørsvåg II og Ørsvåg III og eru … Halda áfram að lesa „Tvíburabátar“ afgreiddir til Lofoten í Noregi

Varðskipið Freyja

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessar drónamyndir af varðskipinu Freyju í gær þegar skipið var á siglingu undan Stafnesi. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. 3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja

Halldór Runólfsson NS 301

1581. Halldór Runólfsson NS 301. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Halldór Runólfsson NS 301 frá Bakkafirði kemur hér að landi í Þorlákshöfn í aprílmánuði 1982. Hann var smíðaður í Bátalóni hf. í Hafnarfirði árið 1981 fyrir Hafnarbakka hf. á Bakkafirði. Báturinn er 29 brl. að stærð og heitir í dag Faxi og er gerður út til … Halda áfram að lesa Halldór Runólfsson NS 301

Christina S verður Margrét EA 710

IMO 9388572. Christina S FR 224 - 3038. Margrét EA 710. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Skoska uppsjávarveiðiskipið Christina S FR 224 hefur fengið nafnið Margrét EA 710 samkvæmt Íslenskri skipaskrá og skipaskrárnúmerið 3038. Maggi Jóns tók þessa mynd af skipinu í dag þar sem það var við Skarfabakka í Sundahöfn í Reykjavík. Skipið, sem var … Halda áfram að lesa Christina S verður Margrét EA 710

Gunnar Sveinn GK 237

694. Gunnar Sveinn GK 237 ex Gígjasteinn SH 237. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Gunnar Svein GK 237 í Njarðvíkurslipp haustið 1987 en hann var með heimahöfn í Sandgerði. Báturinn, sem var 14 brl. að stærð, hét upphaflega Níels Jónsson EA 106 og var smíðaður úr eik og furu í Skipasmíðastöð KEA árið … Halda áfram að lesa Gunnar Sveinn GK 237