Snæfell mun aðallega veiða grálúðu – og karfa

2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Eins og áður hefur komið fram á síðunni kom Snæfell EA 310, frystitogari Samherja, kom til Akureyrar sl. laugardag.

Samherji keypti skipið af Framherja í Færeyjum á árinu.

Á heimasíðu fyrirtækisins segir:

Ýmsar endurbætur voru gerðar á skipinu í kjölfar kaupanna, sem aðallega er ætlað að stunda veiðar og vinnslu á grálúðu og karfa.

Skipið sem var smíðað í Noregi árið 1994 er 85 metra langt og 2,898 brúttótonn. Samið var um endurbæturnar við Orskov Yars skipasmíðastöðina í Fredrikshavn í Danmörku.

Vinnslulínan var endurnýjuð, vistarverur voru að stórum hluta endurgerðar og einnig sameiginleg rými. Rafeindahluti í brú var endurnýjaður að mestu leyti. Skipt var um loftræstikerfi og ýmiss búnaður í vélarrúmi var uppfærður. Þá var skipið heilmálað, bæði að innan og utan.

Samtals tóku þessar breytingar í Danmörku liðlega þrjá mánuði.

Ráðgert er að Snæfell haldi til veiða í vikunni. Átjan menn verða að jafnaði í áhöfn. Skipstjóri í fyrsta túr verður Pálmi Hjörleifsson og yfirvélstjóri Óli Hjálmar Ólason. Stefán viðar Þórisson verður skipstjóri á móti Pálma.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s