
Flutningaskipið Zijlborg kom til Húsavíkur í kvöld eftir rúmlega fjögurra sólarhringa siglingu frá Hollandi.
Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.
Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl.
Skipið er 4,938 GT að stærð og var smíðað árið 2001. Lengd þess er 119 metrar og breiddin 15 metrar.


Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution