
Bára ÞH 7 var smíðuð af Herði Björnssyni á Borgarfirði eystra árið 1973 fyrir Jón B. Gunnarsson og Kristinn Lúðvíksson á Húsavík.
Bára var smíðuð úr furu og eik og mælist 7,51 brl. að stærð og gerðu Nonni Begg og Kiddi Lúlla Báru út til ársins 1998 að hún var seld.
Grímur ehf. á Húsavík keypti hana og seldi aftur stuttu seinna til Raufarhafnar og þar var hún undir sama nafni og númeri til ársins 2010.
Þá fór Bára ÞH 7 austur á sínar fornu slóðir, Borgarfjörð eystri þar sem hún fékk nafnið Sveinbjörg NS 49.
Síðar fékk báturinn nafnið Glófaxi NS 49 og var í eigu Ólafs Sveinbjörnssonar en eigandi bátsins í dag er Bátasafn Borgarfjarðar ses.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution