
Þessi mynd var tekin 12. nóvember árið 2009 og þarna var verið að fara með Ásborgu BA 84 á vagni um hafnarsvæðið á Húsavík áleiðis að athafnasvæði Trésmiðjunnar Val þar sem báturinn var tekinn í gegn.
Fyrr um sumarið hafði báturinn verið keyptur frá Patreksfirði en eftir þessa yfirhalningu fékk hann nafnið Tjaldur II ÞH 294.
Um Tjaldinn má lesa nánar hér en báturinn var smíðaður á Fáskrúðsfirði árið 1970 og hét upphaflega Neisti RE 58.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution