
Hér má sjá Magnús NK 72 í dráttarbrautinni í Neskaupstað en þarna var búið að lengja hann og yfirbyggja.
Magnús var smíðaður árið 1967 í Lindstöl Skips & Baatbyggeri A/S í Risör í Noregi og var með smíðanúmer 263.
Eigandi var Ölver h/f í Neskaupstað og kom skipið, sem var 274 brl. að stærð og búinn 775 hestafla Rustonaðalvél, í fyrsta skipti til heimahafnar í marsmánuði 1967.
Báturinn var endurmældur árið 1970 og mældist þá 222 brl. að stærð. Hann var lengdur og yfirbyggður árið 1977 og mældist þá 252 brl. að stærð. Árið 1981 var sett í bátinn 1065 hestafla Bergen Dieselaðalvél. Ný brú var sett á Magnús árið 1984 og aann var skutlengdur og sett á hann perustefni árið 1987.
Magnús NK 72 var í eigu Ölvers h.f. í Neskaupstað þangað til í febrúar 1988 en þá var hann seldur til Þorbjarnar hf. í Grindavík. Þar fékk hann nafnið Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11, síðar Valaberg GK 399 og Bergur VE 44.
Sögu bátsins eftir það má lesa á miða frá Hauki Sigtryggi:
Bergur VE 44. Útg: Bergur ehf. Vestmannaeyjum. (1997 – 2005).
Álsey VE 2. Útg: Bergur ehf. Vestmannaeyjum. (2005 – 2007).
Álsey II. VE 24. Útg: Bergur ehf. Vestmannaeyjum. (2007).
Flaggað út 2007 – heim aftur 2008.
Carpe Diem HF 32. Höfn: Marokko. Útg: Hafnarfirði. (2007 – 2008).
Carpe Diem HF 32. Höfn: Laayoune. Útg: Faenus. Marocco. (2007 – 2008).
Carpe Diem HF 32. Útg: Hosma h.f. Hafnarfirði. (2008 – 2010).
Alpha HF 32. Útg: Bp skip Afríka ehf. Reykjavík. (2010 – 2016).
Alpha HF 32. Útg: Samherji hf. (Með það á leigu nokkra mánuði).
Seldur úr landi 05.07.2016. Nordic 12-99. Útg: ?? Svíþjóð. Höfn: Dakla. Marokkó. (2016 – 2024).
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution