Blíðfari ÓF 70

2069. Blíðfari ÓF 70 ex Sæborg SU 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Strandveiðibáturinn Blíðfari ÓF 70 kemur hér að landi á Siglufirði í gær en báturinn stundar alla jafna róðra þaðan. Blíðfari hét upphaflega Ólafur HF 251 og var smíðaður árið 1990 hjá Mótun í Hafnarfirði. Ólafur HF 251 var seldur til Siglufjarðar árið 2005 … Halda áfram að lesa Blíðfari ÓF 70

Vestri á útleið frá Siglufirði

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Rækjutogarinn Vestri BA 63 stundar veiðar úti fyrir Norðurlandi og landar á Siglufirði. Hann er þar yfirleitt á þriðjudögum og því var brunað á Tröllaskagann í morgun. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk … Halda áfram að lesa Vestri á útleið frá Siglufirði

NG Explorer kom til Húsavíkur í dag

IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur um miðjan dag í dag og það ekki í fyrsta skipti. Skipið lagðist að Þvergarðinum en Silver Whisper var við Bökugarðinn. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og er í … Halda áfram að lesa NG Explorer kom til Húsavíkur í dag

Strandveiðibátar taka olíu

6836. Jón Jak ÞH 8 - 6969. Lilja ÞH 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta strandveiðibátana Jón Jak ÞH 8 og Lilju ÞH 21 þar sem kallarnir voru að taka olíu eftir róður gærdagsins. Farþegar að tínast um borð í hvalaskoðunarbátinn Garðar í baksýn en hvorki gaf veður til strandveiða né hvalaskoðunar … Halda áfram að lesa Strandveiðibátar taka olíu

Andey BA 125

1170. Andey BA 125 ex Andey SH 242. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Andey BA 125 hét upphaflega Trausti ÍS 300 frá Suðureyri við Súgandafjörð og var smíðaður í Stálvík árið 1971. Hann hafði smíðanúmer 16 hjá Stálvík og var smíðaður eftir teikningu Ágústs G. Sigurðssonar. 1973 er Trausti seldur til Keflavíkur, kaupendur er Magnús Þórarinsson, Jónas … Halda áfram að lesa Andey BA 125

Síldar­vinnslan kaupir Vísi hf.

2957. Páll Jónsson GK 7 flaggskip Vísis hf. í Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Síldarvinnslan (SVN) hefur náð samkomulagi um kaup á öllu hlutafé útgerðarfélagsins Vísis í Grindavík. Kaupin eru háð fullnægjandi niðurstöðu áreiðanleikakönnunar ásamt samþykki hluthafafundar SVN og Samkeppniseftirlitsins. Í tilkynningu SVN til Kauphallarinnar kemur fram að viðskiptin nemi um 31 milljarði króna. Kaupverð hlutafjár er … Halda áfram að lesa Síldar­vinnslan kaupir Vísi hf.