Náttfari kemur úr hvalaskoðun í dag

993. Náttfari kemur úr hvalaskoðunarferð í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Norðursigling hóf á dögunum hvalaskoðunarvertíðina þetta árið og á þessari mynd sést Náttfari koma til hafnar í dag. Svona líka nýskveraður og fínn. Samkvæmt Fésbókarsíðu NS hefur vertíðin farið vel af stað og hnúfubakar sést í öllu ferðum til þessa. Náttfari hefur siglt með ferðamenn … Halda áfram að lesa Náttfari kemur úr hvalaskoðun í dag

Landað úr Níelsi um árið

1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Hér er verið að landa úr netabátnum Níelsi Jónssyni EA 106 á Hauganesi í marsmánuði árið 2007. Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði. Hann var afhentur þann 2. … Halda áfram að lesa Landað úr Níelsi um árið

Skýjaborgin

2157. Skýjaborgin ÞH 118 ex Jón Eggert ÍS 32. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Hér bíða kallarnir á grásleppubátnum Skýjaborginni þess að Kalli í Höfða ÞH 234 ljúki löndun svo þeir komist undir kranann. Þetta var í aprílmánuði árið 2003 en Skýjaborgin ÞH 118 var keypt frá Bolungarvík árið 2002. Þar hét hann Jón Eggert ÍS … Halda áfram að lesa Skýjaborgin