Landað úr Níelsi um árið

1357. Níels Jónsson EA 106 ex Arnarnes ÍS 133. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007.

Hér er verið að landa úr netabátnum Níelsi Jónssyni EA 106 á Hauganesi í marsmánuði árið 2007.

Báturinn hét upphaflega Arnarnes ÍS 133 og var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri fyrir samnefnt fyrirtæki á Ísafirði.

Hann var afhentur þann 2. mars árið 1974 en í nóvember sama ár var Arnarnes selt á Hauganes við Eyjafjörð. fékk nafnið Níels Jónsson EA 106.

Kaupendur voru Gunnar Níelsson og synir hans Níels og Halldór og Arnarnesið fékk nafnið Níels Jónsson EA 106.

Lesa má fróðleik um bátin á vefnum aba.is en hann er enn í eigu afkomenda Gunnars og gerður út til hvalaskoðunar á Eyjafirði.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s