
Brimill SH 31,sem hér sést koma til hafnar á Skagaströnd sumarið 2006, hét upphaflega Sigrún HU 46 og var smíðuð á Blönduósi árið 1990.
Árið 1993 er hann seldur á Akranes þar sem hann fékk nafnið Maron AK 94. Árið 1997 er Maron orðinn GK 522 með heimahöfn í Grindavík.
Frá Suðurnesjum fer báturinn vestur á firði árið 2005 og fær nafnið Svalur BA 120 með heimahöfn á Bíldudal.
Þar stoppaði hann stutt því ári síðar fær hann það nafn sem hann ber á myndinni og heimahöfn Stykkilshólmur.
Árið 2008 er hann seldur til Patreksfjarðar þar sem hann fékk nafnið Jón Páll BA 133 sem hann ber enn þann dag í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution