1292. Haukur ex Haukur ÍS 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hvalaskoðunarbáturinn Haukur er hér á hvalaslóðum Skjálfanda í sumarlok árið 2000. Haukur var smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1973 og hét upphaflega Sigurður Baldvin KE 22. Sama ár var hann seldur vestur á firði þar sem hann fékk nafnið Haukur … Halda áfram að lesa Haukur á Skjálfanda
Month: janúar 2022
Þorsteinn GK 15
Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Nú birtast myndir af Þorsteini GK 15 koma til hafnar á Raufarhöfn eftir netaróður vorið 2007. Báturinn er einn Svíþjóðarbátanna svokölluðu, af minni gerðinni. Hann hefur alla tíð heitið Þorsteinn og er ÞH 115 í dag. Hann var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík … Halda áfram að lesa Þorsteinn GK 15
Sunnuberg GK 199
1002. Sunnuberg GK 199 ex Gísli Árni RE 375. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eins og fram kom á síðunni um daginn var Gísli Árni RE 375 seldur til Grindavíkur árið 1988 og var kaupandi Fiskimjöl & lýsi hf. þar í bæ. Þar fékk hann nafnið Sunnuberg GK 199 og þennan fína gula lit. En það átti … Halda áfram að lesa Sunnuberg GK 199
Varðskipið Þór úti fyrir Grindavík
2769. Varðskipið Þór úti fyrir Grindavík. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessa mynd í vikunni af varðskipinu Þór úti fyrir Grindavík. Áhöfn Þórs var þar að leggja út öldumælidufl. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór úti fyrir Grindavík
Mariejte Nora við Bökugarðinn
IMO:9481609. Marietje Nora. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Marietje Nora kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Marietje Nora siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er 3,956 GT að stærð og var smíðað árið 2015. Lengd … Halda áfram að lesa Mariejte Nora við Bökugarðinn
Húsavíkurhöfn nú undir kvöld
Húsavíkurhöfn 19. janúar 2022. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin nú undir kvöld og sýnir m.a Háey I og Jökul en sá fyrrnefndi var nýkominn að úr línuróðri. Jökull kom úr slipp á Akureyri í morgun og unnið var að því í dag að útbúa hann til næstu veiðiferðar. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn nú undir kvöld
Steini Vigg á Skjálfanda
1452. Steini Vigg SI 110 ex Guðrún Jónsdóttir ÓF 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Steini Vigg SI 110 er hér á siglinu á Skjálfanda í júlímánuði 2010 en þá var Norðursigling með hann á leigu um tíma. Þegar myndin var tekin var báturinn á leið til hafnar en hann ásamt fleir bátum NS sigldu til … Halda áfram að lesa Steini Vigg á Skjálfanda
Ljósfari GK 184
219. Ljósfari GK 184 ex Víðir II GK 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ljósfari GK 184 liggur hér við bryggju í Sandgerði en það var Útgerðarfélagið Barðinn hf. sem átti hann og gerði út. Upphaflega aflaskipið Víðir II GK 275 úr Garði en hann var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn … Halda áfram að lesa Ljósfari GK 184
Víðir II GK 275
219. Víðir II GK 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víðir II GK 275 var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn hét þessu nafni í 30 ár en í febrúarmánuði 1984 var Rafn hf. skráður eigandi. Árið 1990 fékk hann nafnið Ljósfari GK 184 og síðar bar hann nöfnin Njarðvík KE … Halda áfram að lesa Víðir II GK 275
Hafdís ÍS 25
1415. Hafdís ÍS 25 ex Fróði SH 15. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafdís ÍS 25 var einn Slippstöðvarbátanna sem smíðaðir voru á árunum 1970-1975 og hét upphaflega Fróði SH 15. Fróði var smíðaður fyrir Víglund Jónsson í Hróa hf. í Ólafsvík. Fróði var 143 brl. að stærð búinn 887 hestafla MWM aðalvél. Hann var yfirbyggður árið … Halda áfram að lesa Hafdís ÍS 25









