
Flutningaskipið Marietje Nora kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarðinum hvar nú er verið að skipa upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.
Marietje Nora siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Skipið er er 3,956 GT að stærð og var smíðað árið 2015. Lengd þess er 136 metrar og breiddin 15 metrar.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution