
Nú birtast myndir af Þorsteini GK 15 koma til hafnar á Raufarhöfn eftir netaróður vorið 2007.
Báturinn er einn Svíþjóðarbátanna svokölluðu, af minni gerðinni. Hann hefur alla tíð heitið Þorsteinn og er ÞH 115 í dag.
Hann var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík árið 1946. Smíðin fór fram í skipasmíðastöð O.V.Olssen í Falkenberg í Svíþjóð.
Báturinn hefur alla tíð heitið Þorsteinn, upphaflega EA 15, síðan GK 15 og loks ÞH 115 eins og áður segir.
Núverandi aðalvél bátsins er 510 hestafla eða 380,6 kW Caterpillar árg. 1985. Mesta lengd bátsins er 22,43 metrar, en það er skráð 19,80 metrar og breiddin er 5,18 metrar. Báturinn mælist 51 brl./58,0 brúttótonn að stærð.
Útgerð og eigandi Þorsteins ÞH 115 er Önundur ehf. á Raufarhöfn og hefur báturinn róið frá Suðurnesjum undanfarnar vertíðar.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution