
Hvalaskoðunarbáturinn Haukur er hér á hvalaslóðum Skjálfanda í sumarlok árið 2000.
Haukur var smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1973 og hét upphaflega Sigurður Baldvin KE 22. Sama ár var hann seldur vestur á firði þar sem hann fékk nafnið Haukur ÍS 195.
Norðursigling keypti hann árið 1996 og sumarið eftir hóf hann hvalaskoðunarsiglingar frá Húsavík.
Árið 2002 var honum breytt í tveggja mastra skonnortu með bugspjóti. Haukur er 19 brl. að stærð.
Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution