Garðar

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér úr hvalaskoðunarferð eftir hádegi í dag en renniblíða var á Skjálfandaflóa. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar

Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar

2677. Bergur VE 44 ex Brodd 1. Ljósmynd Þór Jónsson 2021. Bergur ehf. í Vestmannaeyjum hefur samþykkt sölu á Berg VE 44 til Vísis í Grindavík. Skipið verður afhent nýjum eigendum í ágúst á þessu ári.  Í tilkynningu á vef Síldarvinnslunnar kemur fram að Bergur er með tæplega 1600 þorskígildi, en skipið er selt án aflaheimilda. … Halda áfram að lesa Breytingar á skipastól Síldarvinnslunnar

Tímamót í lífi manns

Gísli V. Jónsson á brúarvængnum á Páli Jónssyni GK.Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Í gær sigldi Gísli V. Jónsson skipi sínu, Páli Jónssyni GK 7, í síðasta sinn til hafnar í heimahöfn í Grindavík. Jón Steinar var með myndavélina á lofti og tók meðfylgjandi myndir af Páli Jónssyni GK 7 sem og kallinum en á … Halda áfram að lesa Tímamót í lífi manns

Ronja Tind á Húsavík

IMO 9743801. Ronja Tind ex Oytind.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Brunnskipið Ronja Tind er á Húsavík í dag að taka seiði frá Rifósi og flytja austur á firði. Donnalaks var hér sömu erinda um helgina. Ronja Tind var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2015 og hét upphaflega Oytind. Ronja Tind er 70 metra langt … Halda áfram að lesa Ronja Tind á Húsavík

Hathor kom með drumba

IMO 9373280. Hathor. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Flutningaskipið Hathor kom til Húsavíkur um helgina og lagðist að Bökugarðinun þar skipað var upp trédrumbum fyrir PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2007 og siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Midwolda. Þða er 89 metra langt, 13 metra breitt og mælist 2,545 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Hathor kom með drumba

Garðar og Náttfari

260. Garðar (fjær) og 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari mætast hér í hafnarmynninu á Húsavík en myndn var tekin í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar og Náttfari

Einar Hálfdáns – Áki í Brekku

2790. Einar Hálfdáns ÍS 11 nú Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Einar Hálfdáns ÍS 11 sem nú heitir samkvæmt skipaskrá Áki í Brekku SU 760 landaði á Húsavík í morgun en báturinn er á handfærum. Hann er í eigu Gullrúnar ehf. á Breiðdalsvík en fyrirtækið hafði bátaskipti við Vébjarnarnúp ehf. í … Halda áfram að lesa Einar Hálfdáns – Áki í Brekku

Víkingar

7361. Aron ÞH 105 - 7465. Jökull ÞH 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta Aron og Jökull en báðir eru bátarnir af Víking-gerð frá Bátasmiðjunni Samtak í Hafnarfirði. Myndin var tekin nú í morgunsárið á Húsavík en þar hefur Aron heimahöfn en Jökull á Kópaskeri. Aron, sem hefur verið lengdur, hét upphaflega … Halda áfram að lesa Víkingar

Varðskipið Týr

1421. V/S Týr á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Varðskipið Týr kom til Húsavíkur síðdegis í dag og lagðist við Bökugarðinn og það ekki í fyrsta skipti. Spurning hvort þetta hafi verið í síðasta skipti. Týr var smíðaður í Danmörku og kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík sumarið 1975. Hér má lesa ágrip … Halda áfram að lesa Varðskipið Týr