
Hér siglir Jökull ÞH 299 meðfram snekkjunni A í gærkveldi en hún liggur á Skjálfandaflóa, rétt utan hafnarinnar á Húsavík.
A er tæpir 143 metrar að lengd og 25 metra breið og ná möstur hennar þrjú hátt í 100 metra hæð. Jökull aftur á móti er 44 metrar að lengd og breidd hans 10 metrar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution