2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af frystitogaranum Tómasi Þorvaldssyni GK 10 þar sem hann var að veiðum sunnan við Eyjar um páskana. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson að veiðum
Month: apríl 2021
Kristín ÞH 157
972. Krstín ÞH 157 ex Kristín GK 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Kristín ÞH 157 lætur hér úr höfn eftir löndun á Húsavík þann 23. september árið 2011. Kristín ÞH 157 var smíðuð í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965, hét upphaflega Þorsteinn RE 303. Síðar bar báturinn nöfnin Þorsteinn RE, Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 157
Myndasyrpa frá komu Vilhems Þorsteinssonar EA 11 haustið 2000
2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Þessar myndir sem nú birtast voru teknar sunnudaginn 3. september árið 2000 þegar fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Vilhelm Þorsteinsson var með smíðanúmer 310 frá Kleven Verft AS í Ulsteinvík í Noregi en skipsskrokkurinn var smíðaður hjá Northen Shipyard í … Halda áfram að lesa Myndasyrpa frá komu Vilhems Þorsteinssonar EA 11 haustið 2000
Gleðilega páska – Happy easter
Trilla á Svalbarðseyri. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Með þessari mynd sem tekin var á Svalbarðseyri á Föstudaginn langa fylgir páskakveðja til lesenda síðunnar um allan heim. With this photo of the small boat that was taken last friday on Svalbarðseyri, easter greetings are sent from Húsavík to readers all around the world. Með því að … Halda áfram að lesa Gleðilega páska – Happy easter
Fanney EA 82
7328. Fanney EA 82 ex Már SH 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd var tekin á Dalvík í fyrradag þegar grásleppubáturinn Fanney EA 82 kom að landi eftir róður dagsins. Fanney , sem er Skel frá Trefjum smíðuð 1991, hét upphaflega Már SH 71 og var frá Grundarfirði. Báturinn var keyptur til Dalvíkur árið … Halda áfram að lesa Fanney EA 82
Vilhelm Þorsteinsson EA 11- Myndasyrpa
2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma fleiri myndir af Vilhelm Þorsteinssyni EA 11 sem teknar voru í morgun þegar hann kom til heimahafnar á Akureyri. Vilhelm Þorsteinsson er stórt, glæsilegt og fullkomið skip, 89 metrar á lengd og 16,6 metrar á breidd. Burðargetan er vel yfir þrjú þúsund tonn í … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11- Myndasyrpa
Vilhelm Þorsteinsson EA 11
2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hið glæsilega nóta- og togskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, kom til heimahafnar á Akureyri í morgun og var þessi mynd tekin við það tækifæri. Meira síðar í dag. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11
Arnþór EA 37
2434. Arnþór EA 37 ex Steini í Höfða EA 37. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Arnþór EA 37 kemur hér að landi á Dalvík í gær en hann er gerður út af G. Ben útgerðarfélagi ehf. á Árskógssandi. Upphaflega hét báturinn Kalli í Höfða ÞH 234 og var smíðaður hjá Trefjum árið 2000 fyrir Aðalstein … Halda áfram að lesa Arnþór EA 37
Grásleppubáturinn Dalborg EA 317
2387. Dalborg EA 317 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Dalborg EA 317 kemur hér að landi á Dalvík í dag báturinn hét upphaflega Dínó HU 70 og var smíðaður árið 1999 í bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Báturinn var af gerðinni Cleopatra 28 en eftir lengingu er hann Cleopatra 31L. Dínó HU … Halda áfram að lesa Grásleppubáturinn Dalborg EA 317
Vilhelm Þorsteinsson EA 11
2982. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér koma fleiri myndir sem teknar voru þegar hið nýja og glæsilega skip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, kom til Akureyrar. Skipið lagðist að bryggju í Krossanesi og fóru skipverjar í skimun vegna Covid 19 og að henni lokinni fór skipið aftur út á Eyjafjörðinn þar … Halda áfram að lesa Vilhelm Þorsteinsson EA 11









